AGE SUMMUM

Age Summum er einstaklega virk andlitsmeðferð sem vinnur gegn ótímabærum aldursbreytingum. Meðferðin örvar endurnýjun húðfrumna, stinnir og þéttir húðvefi.
Meðferðin dregur úr aldurseinkennum á andliti, háls, bringu og handarbökum

Meðferðin byggist á fjórum skrefum

Age Summum djúphreinsir

Djúphreinsirinn undirbýr húðina fyrir andlitsmeðferðina með því að auka innsíun og endurnýjun húðar með því að fjarlægja dauðar yfirborðsfrumur. Húðin verður áferðar-fallegri og fær bjartari ásýnd.

Age Summum serum

Serumið eykur varnarhæfni húðar þökk sé Immune Complex og berst þar af leiðandi gegn aldurseinkennum með því að vernda varnarfrumur húðar/Langerhans-frumur. Hreint C vítamín er blandað við serumið fyrir ásetningu til að virknin sé sem áhrifaríkust. Húðin fær jafnari húðlit, ljómi eykst og það dregur úr litaflekkjum, þökk sé C vítamíninu og Melanoxyl.

Age Summum nuddkrem

Áhrifaríkar nuddhreyfingar á bringu, háls, andlit og handarbök. Hvert svæði er nuddað með sérstakri tækni sem dregur úr aldurseinkennum. Nuddið ásamt virkum innihaldsefnum gera húðina stinnari, mótaðri og ljómi húðar eykst.

Age Summum maskar

Andlitsmaskinn dregur úr hrukkum/línum, þökk sé hýalúronsýru með lágan mólþunga og Mafane exctract. Maskinn sem fer á háls, bringu og handarbök dregur úr fínum línum og litaflekkjum, þökk sé samblöndu af virkni hýalúronsýru með lágan mólþunga, C vítamín og Melanoxyl.

Fyrir alla:

  • Sem vilja draga úr aldurseinkennum (hrukkum/línum, minni styrkleika, líflítil húð, minni ljómi, litabreytingar)
  • Sem vilja draga úr aldurseinkennum á handarbökum, bringu, hálsi og andliti.
age-summum-medferd-post