Skilmálar gjafabréfa:

  • Ekki er hægt að fá gjafabréf endurgreidd.
  • Gjafabréf gilda í eitt ár frá útgáfudegi, gildistíminn kemur fram á gjafabréfinu.
  • Virðisaukaskattur er innifalinn í verðum á gjafabréfum.
  • Hver sá sem hefur gjafabréfsnúmerið getur notað það.
  • Hægt er að breyta um innihald gjafabréfs á snyrtistofunni og borga þá mismun á meðferðum/vörum.
  • Gjafabréfin gilda sem peningagreiðsla upp í allar meðferðir og vörur á Guinot MC snyrtistofunni.
  • Glatist gjafabréfið getur hver sá sem finnur það nýtt sér gjafabréfið hafi það ekki þegar verið innleyst eða ógilt af kaupanda.
  • Ef gjafabréf glatast getur viðkomandi látið strax vita og látið loka bréfinu ef hann er með gjafabréfsnúmerið og nýtt búið til í staðinn.
  • Handhafi er ábyrgur fyrir notkun gjafabréfs þar til gjafabréfið hefur verið tilkynnt glatað.
  • Aðeins er hægt að loka gjafabréfinu ef viðkomandi er með gjafabréfsnúmerið.
  • Með kaupum á gjafabréfinu samþykkir kaupandi skilmála þessa.
  • Með því að kaupa gjafabréfið á netinu fær viðkomandi gjafabréfið sent í tölvupósti til útprentunar.
  • Hægt er að versla gjafabréf á netinu með öllum kortum í gegnum greiðslusíðu Borgunar eða koma á staðinn (Guinot MC snyrtistofuna) og versla gjafabréfið.
  • Ef gjafabréfið inniheldur meðferð á snyrtistofunni, þá pantar handhafi gjafabréfsins tíma í meðferðina með því að hringja í síma 568-9916.
  • Guinot MC snyrtistofan áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum án fyrirvara.

Guinot MC snyrtistofan

  • Heimilisfang: Grensásvegur 50, 108 Reykjavík
  • Sími: 568-9916
  • Opnunartími: Alla virka daga 9:00-18:00
  • Netfang: guinotmc@guinotmc.is
  • Kennitala: 590210-0640
  • VSK-númer: 104702