Andlitsmeðferðir

Stinnandi

Bylting gegn öldrun á 30 mínútum

Markmið meðferðar

Meðferðin hefst á djúphreinsun og svo er Age Influx þykkni borið á húðina sem örvar frumuendurnýjun. Þykknið myndar einnig kemískan hita í húðinni, án ertingar, til að auka blóðflæði til efri húðlaga og örva taugaenda í húð. Við það eykst frumunýmyndun svo efri húðlögin þykkna. Síðan er unnið með Vibrosmoothing elektróðu sem sléttir og jafnar áferð yfirhúðar. Loks er unnið með Vibrodermic elektróðu sem vinnur dýpra í húðinni (í leðurhúðinni) og dregur úr samdrætti í húð sem veldur hrukkum. Saman ‘brjóta’ elektróðurnar niður yfirborð hrukka og fínna lína sem nýjar frumur fylla síðan upp í svo húðin verður sléttari.

Árangur

Augnsvæðið hefur fengið lyftingu, dregið hefur úr fínum línum, þrota og baugum. Augnsvæðið er unglegra.

Skoða betur
Rakagefandi

Einstök djúpvirkandi meðferð

Markmið meðferðar

Hydradermie er einstök djúpvirkandi meðferð fyrir andlit, augu, háls og bringu þar sem unnið er með háþróað Hydradermie rafmagnstæki. Meðferðin örvar frumustarfsemi húðar þannig að hún nái að starfa á sem bestan máta.

Meðferðin er sérsniðin að húðgerð og markmiðum viðskiptavinar. Efnin í Hydradermie eru að vinna í húðinni í 24 tíma að lokinni meðferð. Eftir hvert skipti sérðu hvað Hydradermie meðferð gerir húðinni gott.

  • Sérsniðin meðferð að þinni húðgerð og markmiðum.
    • Gegn öldrunareinkennum
    • Rakagefandi
    • Hreinsandi
    • Nærandi
    • Jafna húðlit
    • Róa og sefa viðkvæma húð
    • Þétta húð og gefa fallegri ljóma

Árangur

Húðin verður þéttari, fær fallegri áferð, aukin ljóma og heilbrigðari.

Skoða betur
Uppbyggjandi

Einstök meðferð gegn aldurseinkennum

Markmið meðferðar

Einstök andlitsmeðferð sem dregur úr aldurseinkennum á andliti, hálsi, bringu og handarbökum. Meðferðin örvar endurnýjun húðfrumna, stinnir og þéttir húðina, dregur úr hrukkum og brúnum blettum, eykur ljóma húðar.

Í Age Summum meðferðinni er unnið með einstaklega virk efni og sérstakar hreyfingar sem skila sjáanlegum árangri á aðeins 50 mín.

Árangur

Eftir meðferðina hefur dregið úr aldurseinkennum. Húðin er unglegri. Dregið hefur úr hrukkum, fínum línum og brúnum blettum. Húðin fær aukin ljóma og frískleika. Hendur eru endurnærðar og mjúkar.

Skoða betur
Rakagefandi

Einstök rakagefandi meðferð

Markmið meðferðar

Hydra Summum er rakagefandi meðferð fyrir andlit. Rík af Hýalúronsýru sem þéttir, sléttir og gefur húðinni kröftugan raka. Sérsniðið nudd hámarkar virkni virkra efna í andlitsmeðferðinni.

  • Meðferð sem hentar fyrir alla. Markmið meðferðar:
    • Þéttir húðina
    • Dregur úr hrukkum og fínum línum
    • Gefur húðinni kröftugan raka

Árangur

Eykur þéttleika í húðinni og dregur úr aldurseinkennum (hrukkum og fínum línum). Endurheimtir góðan raka og mýkt húðar.

Skoða betur
Frískandi

Endurnýjandi andlitsmeðferð

Markmið meðferðar

Hydra Peeling – Hydra PH er fyrir allar húðgerðir (unnið með AH, BH & PH sýrur). Hydra Peeling – Hydrabrasion er fyrir viðkvæma húð (unnið með sellulósa og ensím).

  • Dregur úr aldurseinkennum
  • Eykur ljóma og húðin verður áferðarfallegri
  • Dregur úr brúnum blettum
  • Eykur endurnýjun húðar

Árangur

Húðin verður áferðarfallegri, ljómi húðar eykst, húðin verður mjúk og endurnærð.

Skoða betur
Hreinsandi

Hreinsandi andlitsmeðferð

Markmið meðferðar

Hydraclean er kröftug hreinsandi andlitsmeðferð í tveimur þrepum og tekur aðeins 30 mínútur. Meðferðin er sérstaklega hönnuð fyrir ungt fólk sem vilja stutta en áhrifaríka meðferð.

Meðferðin hentar öllum húðgerðum.

Árangur

Eftir 30 mínútur er húðin hreinni og ljómi hefur aukist. Húðin er móttækilegri fyrir Guinot snyrtivörum.

Skoða betur
Hreinsandi

Hreinsandi – kemur jafnvægi á húðina

Markmið meðferðar

Utanaðkomandi álagsþættir eins og mengun, óheilbrigður lífstíll og mataræði, vinnuálag, almenn streita og hormónaójafnvægi geta leitt til röskunar á eðlilegri starfsemi húðar. Þessir þættir geta orsakað aukinn fituglans á yfirborðinu, útvíkkaðar húðholur, fílapensla og önnur húðlýti.

Équilibre Pureté andlitsmeðferðin er ætluð öllum húðgerðum en þó sérstaklega blandaðri og feitri húðgerð til að koma til móts við einkenni þeirra eða sem forvörn og hindra myndun húðlýta.

Árangur

Á 40 mínútum er húðin hreinni og í meira jafnvægi. Dregið hefur úr húðlýtum og fituglans. Húðin er jafnari, frísklegri og fær meiri ljóma.

Skoða betur
Stinnandi

Minnkar hrukkur á augnsvæði

Markmið meðferðar

Öflug sérmeðferð fyrir augnsvæðið sem vinnur gegn hrukkum, þrota og baugum. Í meðferðinni er unnið með vöðvaþjálfun þar sem notað er Hydradermie tækið. Meðferðin styrkir augnsvæðið, hindrar þrota, minnkar dökka bauga og endurnýjar frumustarfsemi húðar.

Árangur

Augnsvæðið hefur fengið lyftingu, dregið hefur úr fínum línum, þrota og baugum. Augnsvæðið er unglegra.

Skoða betur
Stinnandi

Stinnari og þéttari húð á 50 mínútum

Markmið meðferðar

Lift Summum andlitsmeðferðin gerir húðina stinnari og dregur samstundis úr þreytu og öldrunarmerkjum í andliti, á hálsi og bringu.
Meðferðin er samblanda af einstaklega virkum innihaldsefnum sem auka stinnleika og þéttleika húðar ásamt sérstöku nuddi.

Árangur

Eftir 50 mínútur er húðin á andliti, háls og bringu stinnari og þéttari. Dregið hefur úr þreytu og öldrunarmerkjum eins og hrukkum og fínum línum.

Skoða betur
Frískandi

Súrefnismettandi og hreinsandi

Markmið meðferðar

Óæskilegt magn úrgangsefna getur sest á yfirborð húðar og dregið úr frískleika hennar, húðin missir ljóma sinn. Þættir sem geta haft áhrif eru t.d. mengun, sýklar, ryk, lífstíll, streita, svefnleysi, mataræði o.fl.

Á aðeins 50 mín, stuðlar Détoxygéne andlitsmeðferðin að aukinni súrefnisupptöku húðar og fjarlægir úrgangsefni og mengun. Húðin starfar eðlilega á ný og fær frísklegt útlit.

Árangur

Strax eftir meðferð er húðin einstaklega frískleg, mjúk, hrein og ljómi húðar hefur eykst.

Skoða betur