Age Summum

Age Summum er einstaklega virk andlitsmeðferð sem vinnur gegn ótímabærum aldursbreytingum. Meðferðin örvar endurnýjun húðfrumna, stinnir og þéttir húðvefi.
Meðferðin dregur úr aldurseinkennum á andliti, háls, bringu og handarbökum.
Innifalið í andlitsmeðferðinni er nudd á andlit, háls, bringu, herðar & handarbök.

age-summum-medferd-post
detoxygene

Détoxygéne

Óæskilegt magn úrgangsefna getur myndast hjá hvaða húðgerð sem er. Það er margt sem getur haft áhrif á magn úrgangsefna í húðinni, t.d. umhverfismengun og lífstíll (lélegt mataræði, svefnleysi og streita).

Á AÐEINS 1 KLUKKUSTUND, STUÐLAR DÉTOXYGÈNE MEÐFERÐIN AÐ AUKINNI SÚREFNISUPPTÖKU HÚÐAR OG FJARLÆGIR ÚRGANGSEFNI OG MENGUN. HÚÐIN STARFAR EÐLILEGA Á NÝ OG FÆR FRÍSKLEGT ÚTLIT.

Meðferðin fer fram í 3 skrefum:

  1. Détoxygéne Djúphreinsun:
    Dauðar húðfrumur hlaðnar úrgangsefnum og mengunarþáttum eru fjarlægðar.
    Sléttir og betrumbætir áferð húðar.
  2. Détoxygéne hreinsandi maski:
    Hreinsar úrgangsefni húðar
    Virkar eins og nokkurskonar “mengunarsegull” sem tekur upp og eyðir mengunarögnum.
    Dregur til sín úrgangsefni og óhreinindi.
  3. Détoxygéne súrefnismettandi nudd:
    -Örvar súrefnisupptök húðfrumna og eflir efnaskipti þeirra.
    -Veitir frumunum nauðsynlega orku til að starfa eðlilega.
    -Verndar húðina gegn skaðlegum áhrifum mengunar, hjálpar til við að eyða skaðlegum öreindum og að fyrirbyggja að þær loði við húðina
    -Rakamettar og mýkir fyrstu einkenni um hrukkur og línur

Eye Lift

Öflug sérmeðferð fyrir augnsvæðið sem vinnur gegn hrukkum, þrota og baugum.  Í meðferðinni er notast við vöðvaþjálfun í Hydradermie tækinu. Meðferðin styrkir augnsvæðið, hindrar þrota, minnkar dökka bauga og endurnýjar frumustarfsemi húðar.

eyelogic
hydraclean

Hydraclean

Hydraclean er kröftug hreinsandi andlitsmeðferð í tveimur þrepum og tekur aðeins 30 mínútur.  Meðferðin er sérstaklega hönnuð fyrir ungt fólk sem vilja stutta en áhrifaríka meðferð.  Meðferðin hentar öllum húðgerðum.

HYDRADERM CELLULAR ENERGIE

Ný háþróuð Hydraderm Cellular Energie vél sett á markað nóvember 2016

Hydraderm cellular energie er einstök djúphreinsi- og rakameðferð fyrir andlit, augu, háls og bringu þar sem unnið er með háþróað Hydraderm rafmagnstæki.
Til eru fimm mismunandi tilbrigði meðferðarinnar sem veljast eftir húðgerð og markmiðum þínum. Efnin í Hydraderm eru að vinna í húðinni í 24 tíma að lokinni meðferð. Eftir hvert skipti sérðu hvað Hydraderm meðferð gerir húðinni gott. Með því að halda meðferðinni við mánaðarlega verður húðin lífleg, heilbrigð og ljómar allt árið um kring.
Hvort sem Hydraderm er ráðlögð sem þriggja meðferða kúr eða sem mánaðarleg meðferð er hún ein árangursríkasta djúphreinsimeðferð sem til er fyrir húðina.
Innifalið í meðferðinni er slakandi nudd á andlit, bringu og axlir.

Ávinningur Hydraderm:
Eykur raka og mýkt húðar
Þéttir húð og gefur fallegri áferð
Djúphreinsar húðina, mjög góður árangur fyrir slæma bóluhúð
Stuðlar að rakajafnvægi og réttu sýrustigi húðar.
Líffræðileg starfsemi húðar eykst.

hydraderm
hydralift

HYDRADERMIE LIFT

Andlitslyfting þar sem unnið er með háþróðað HYDRADERM CELLULAR ENERGIE rafmagnstæki.
Meðferðin byggist á vöðva- og sogæðaörvun ásamt andlits- og herðanuddi.
Vöðvaörvun styrkir andlits- og hálsvöðva, húðin verður sléttari, stinnari og frísklegri.
Sogæðaörvun eykur úrgangsefnalosun húðvefja og dregur úr þrota og baugum.
Frumustarfsemin eykst og frumurnar endurnýjast hraðar.

HYDRA PEELING

Hydra Peeling meðferðirnar frá Guinot eru: Endurnýjandi, rakagefandi, djúphreinsandi, slétta áferð húðar, auka ljóma, draga úr brúnum blettum og öldrunarmerkjum.

HYDRA PEELING er áhrifarík 45 mínútna stofumeðferð sem bíður upp á tvær meðferðir sem koma til móts við ólíkar þarfir húðar. Meðferðirnar hafa sameiginleg markmið um árangur og virkni en nálgast þau á mismunandi hátt. HYDRA PEELING með HYDRA PH notast við AH-, BH- og PH sýrur sem leiðir til kröftugrar virkni án óæskilegra ertingsþátta en HYDRA PEELING með HYDRABRASION býður upp á mildari endurnýjun húðar með sellulósa og ensímum.

hydrapeelingmynd3
hydra-summum-medferd-post

HYDRA SUMMUM ANDLITSMEÐFERÐ

Rík af hýalúronsýru sem þéttir, sléttir og gefur húðinni kröftugan raka.

Meðferðin er gerð í 4 meginskrefum:

HYDRA SUMMUM DJÚPHREINSIR
Djúphreinsirinn undirbýr húðina fyrir andlitsmeðferðina með því að auka innsíun og endurnýjun húðar með því að fjarlægja dauðar yfirborðsfrumur.
Húðin verður áferðarfallegri og fær bjartari ásýnd.

HYDRA SUMMUM ÞYKKNI
Hydra Summum þykknin inniheldur háan styrk af hýalúronsýru, sem hjálpar við að fylla í fínar línur. Ekki á að þrífa vöruna af. Þykknin örvar yfirhúð og myndar varnarfilmu fyrir þéttari, fullkomlega rakamettaða og silkimjúka húð.

HYDRA SUMMUM NUDDKREM
Fyrst eru nuddaðar sogæðaörvandi strokur sem hjálpa til við úrgangsefnalosun, þetta er gert til að losa stíflur og endurmóta andlit. Svo eru kröftugar nuddhreyfingar sem slétta, endurheimta þéttleika og ljóma í húðinni.

HYDRA SUMMUM MASKI
Hydra Summum andlitsmaskinn er frískandi og kælandi og veitir mikinn og góðan raka. Maskinn inniheldur:
Kröftug rakagefandi innihaldsefni, hydralogic efnasamband og hýalúronsýru sem einnig þéttir og sléttir húðina.
Acticalm sem mýkir þurra húðina og styrkir varnarfilmu hennar. Dregur úr óþægindartilfinningu, bólgueyðandi, rakagefandi og endurnýjandi.

MARKHÓPUR
Fyrir alla:

  • Sem vilja aukinn þéttleika í húðinni og draga úr aldurseinkennum (hrukkum og fínum línum).
  • Sem vilja endurheimta góðan raka og mýkt húðar.

LIFT SUMMUM

Einstök aðferð í andlitsmeðferð sem gerir húðina stinnari og dregur samstundis úr þreytu og öldrunarmerkjum í andliti, á hálsi og bringu. Meðferðin er í fjórum þrepum og tekur 50 mín. Innifalið í meðferð er nudd á andlit og bringu.

  • Djúphreinsun húðar til að undirbúa móttöku virkra efna og fjarlægja dauðar hornlagsfrumur af yfirborði húðar með kornum og ensýmum.
  • Andlitsnudd fyrir hvert svæði (andlit, háls og bringu) er sérstakt nudd sem örvar húðveginn. Húðin verður samstundis þéttari og fær lyftingu. Virku innihaldsefnin í séruminu auka mýkt húðar.
  • Virkt serum sem jarnar út áferð húðarinnar. Með bæði efnafræðilegri og líffræðilegri virkni. Dregur úr hrukkum; augnsvæði, enni, broslínur og háls verða sléttari.
  • Andlits-háls og bringu maski sem styrkjir húðina. Endurheimtir mýkt, glóa og húðin verður unglegri.
liftsummum
equilibrepurete-post

ÉQUILIBRE PURETÉ stofumeðferð

Utanaðkomandi álagsþættir eins og mengun, óheilbrigður lífstíll og mataræði, vinnuálag, almenn streita og hormónaójafnvægi geta leitt til röskunar á eðlilegri starfsemi húðar. Þessir þættir geta orsakað aukinn fituglans á yfirborðinu, útvíkkaðar húðholur, fílapensla og önnur húðlýti.

Équilibre Pureté andlitsmeðferð er ætluð öllum húðgerðum en þó sérstaklega blandaðri húðgerð og feitri til að koma til móts við einkenni þeirra eða sem forvörn og hindra myndun húðlýta. Meðferðin hreinsar húðina og kemur jafnvægi á hana, dregur úr húðlýtum, dregur úr fituglans og jafnar húðlitinn. Meðferðin samanstendur af:

  • Djúphreinsun með hitamyndandi ensímdjúphreinsi sem opnar húðholur, mýkir og fjarlægir dauðar húðfrumur
  • Hreinsandi andlitsmaski með hreinsandi leir sem dregur til sín umfram húðfitu og hreinsar upp óhreinindi af yfirborði húðar ásamt því að endurheimta húðjafnvægi.
    Kreistun ef þess þarf. Eftir djúphreinsun og maskann er húðin mjúk og fitunabbar fílapensla mýkri sem gerir kreistun auðveldari og sársaukaminni.
  • Acni-Logic serum borið á húð. Serumið heftir umfram húðfituframleiðslu, húðin endurheimtir jafnvægi á húðfitumyndun, berst gegn myndun húðlýta og fituglansa á yfirborðinu, ásamt því að draga saman húðholur.