Kröftug húðrútína gegn öldrunarmerkjum
Glæsilegt gjafasett úr gull línu Guinot, Age Summum andlitskrem og Eye Summum augnkrem í fullum stærðum. Vörurnar vinna á sýnilegum öldrunarmerkjum og hjálpa húðinni að öðlast sléttara, stinnara og ferskara yfirbragð. Falleg jólagjöf fyrir þau sem vilja vandaðar, háþróaðar húðvörur fyrir andlit og augnsvæði.
Age Summum andlitskrem vinnur sérstaklega á hrukkum, fínum línum, slappri húð, litabreytingum og skorti á ljóma.
Eye Summum augnkrem vinnur sérstaklega á öldrunarmerkjum og þreytumerkjum í kringum augun, þar á meðal hrukkum, slappri húð á efri augnlokum, dökkum baugum og þrota.

